|
mánudagur, september 30, 2002
Er búinn að fylgjast með Popppunktinum á Skjá einum.. mér finnst þetta alveg brillíant þáttur og það eru nú ekki margir þættir sem ég glápi á en þessi nær alveg athygli minni... mér fannst samt soldið sérstakt hvernig Felix hagaði sér í síðasta þætti, þar sem Sálin og Miljónamæringarnir voru að keppa..Hann var stöðugt að haga sér eins og hálfvita, með aulalega brandara, dansa með lögunum og endurtaka og hlægja með öllu sem millarnir voru að segja...þ.e.a.s Páll Óskar var að segja.. ég myndi nú bara skilja þetta sem að greddutillfining hafi læðst um hann eða hann sé skotinn.. Séð og Heyrt ætti að kanna þetta.
Gullkorn Dagsins
30.September
Þó að það geti verið dapurleg sjón að sjá myndarlegt
fólk í hrörlegum hreysum er hitt enn ömurlegra að
sjá menningarsnautt og ljótt fólk í glæstum sölum.
Það er raunarlegt þegar húsakynni bera langt af
fólkinu.
Þórarinn Björnsson skólameistari
sunnudagur, september 29, 2002
Góðan dag..
Jæja búið að vera fínasta helgi.. fór á djammserí á föstudaginn.. og var hreint og beint mjög drukkinn og skemmti mér bara vel sko, fórum á "keisarann" þar sem stórbandið Trígott var að spila og voru þeir bara skítsæmilegir. uhm það gerðist eiginlega ekkert merkilegt og ég held ég hafi verið kominn heim um 5 leytið.. þannig bara rólegt og fínt djamm..
í gær gerði ég ekki neitt bara.. fór að glápa á vídjó, sá myndina The beliver og Roque trader ekkert merkilegar myndir bara sona skítsæmó..
Hey svo sá ég snilldar þátt á eikkeri stöð á Fjölsýn í gær, en það var þattur um snillinginn Stanley Kubrick, og ég varð hreint besta segja veikur fyrir að sjá sem flestar myndirnar hans eftir þennan þátt.. annars mæli ég með ykkur þarna úti í kvöld að taka... Full Metal Jacket Gomer Pile rúlar.. hehe
eða auðvitað The Shining sem er örugglega scaryasta mynd sögunnar!!! og ein að lokum sem mér fannst allavega á sínum tíma alger SNILLD en það er snilldar kvikmyndin Clockwork Orange þeir sem eru ekki búnir að sjá þessa mynd eru hamstrar eða sokkar með táfýlu
Gullkorn dagsins
29.September
Aleinn, þótt engir vakir,
endi gamalla vísu
haustþeyrinn raular hér:
"Í einu andarteki
ævin og lífið fer."Guðmundur Frímann
föstudagur, september 27, 2002
Snilldar nýr linkur... hjá hljómsveitinni Queens of the stone age
þar er hægt t.d að fá acoustic version of "No One Knows"
Ég hef oft velt einu fyrir mér.. það er bara raunsæislegt að matarvenjur fólks og svo matur almennt þróast með manninum, við erum hætt að éta úldinn mat og sýrðan og með því hefur magakrabbamein lækkað um meira en helming. Matur hefur þróast mikið og nú er mjög algengt að pasta og eða annar kolvetnisfullur matur sé vinsæll..
Þetta er ekki mjög vinsælt meðal fólks yfir 40 ár.. og er hið mesta eitur.. ég man þá tíð að ég var ungur og heimskur og matvandur ef þetta er þá rétt orðað.. það að vera matvandur er ekkert annað en að vera eilítið barnalegur og þrjóska að segja eitthvað sé vont en vita í raun ekki betur, þá er ég ekki að meina að maður eigi að éta allan mat.. mér finnst t.d kjötfars eitt mesti viðbjóður sem hægt er að bjóða fólki. (Bíðið við þessi færsla er með point)
já ég semsagt man þá tíð er ég neitaði eillega öllum mat og það tók á forleldra mína og aðra ættingja.. og sögðu að þetta væri bara matvendi og ekki rétt að venja sig á það.. eins og gengur og gerist þroskast maður eitthvað og núna finnst mér eillega allur matur góður, En þá er eitt sem ég tek verulega eftir.. (sko ég sagði að pointið væri að koma) Það er að eldra fólk 40+ og þar á meðal faðir minn er hinn barnalegasti er kemur að mat.. þá er ekki hægt að borða Pizzu, Pasta eða neitt slíkt nýjungarfæði því þetta er EKKI MATUR!!! hver hefur heyrt þennan frasa áður? ég bara spyr.. er þetta ekki að vera 5 ára eða hvað?
Hr. Hroki 2002 er í ísland í dag akkúrat núna.. Kári Stefánsson dadada...
Jæja undur og stórmerkilegheit... það er komin ný lífsreynslusaga á lífsreynslusíðuna
Þeir sem hafa áhuga á að sín saga verði birt þá bara senda hana á lifsreynsla@hotmail.com
Mjög sérstök auglýsing sem ég heyrði áðan á RadioX en það var verið að auglýsa plötuútsölu í perlunni. þessi risastóra u know.. ok ekkert að því, en lagið undir var kannski ekki alveg sem höfðaði til hlustendahóps RadioX, trúlega hefur þessi auglýsing verið fengin frá Bylgjunni.. en lagið undir var Karen sem að var Eurovisionlag að mér minnir.. sérlega hallærislegt lag.. og mjög fyndið að heyra inn á milli á rokkstöðinni RadioX
En hvernig væri að hafa eitt lag dagsins í viðbót þar sem það er nú Föstudagur og stuð komið í menn..
fínasta lag sem ég var einmitt að biðja Möggu um í óskalagahádeginu að spila fyrir mig ef svo kæmi til að RadioX ætti þetta mæta lag.. En það er með hljómsveitinni Loverboy og tja held að lagið heiti Everybody´s working for the weekend
Gaman af því Guðmundur... þú ættir kannski að sækja um hlutverk í myndinni.. enda slæmur strákur tja á bandaríkskan kvarða allavega..
En ég veit ekki alveg hvað þú ert að tala um hérna á undan... eins og flestir vita þá hef ég aldrei verið við kvennmann kenndur og ætla mér að lifa skírlífi þar til ég gifti mig..
Gaman að segja frá því líka að það er verið að taka upp stórmyndina slæmir strákar 2 með will smith og martin Lawrence, í mínum yndisslega heimabæ Delray Beach, þannig að hér er maður bara umkringdur stjörnum og læti
Já það er gaman af þessu Borgþór enda er Hr. Davíð Oddsson maðurinn, en hvenær eru kosningarnar annars, vona að maður verði á landinu fyrir þær (þær), annars er það bara utankjörstaða.
...En já Helgi ég var nú bara að hringja í þig til að vekja þig, en eins og þú kannski mannst þá skulda ég þér eitt, en þar sem þú svaraðir ekki þá fór ég að hugsa hver myndi svara í símann svona seint, þá datt mér að sjálfsögðu í hug Borgþór nokkur af múraraættum sem væri að sjálfsögðu tilbúinn ef eitthvur einmanna stúlkan vantaði félagsskap (t.d. Bjarni Fel, Palestína eða stelpan sem Kolli hljóp frá, svo ég nefni bara nokkrar) og viti menn hann svaraði og var bara í fílíng sko, minnir mig eða ég var allavega í fílíng. Þannig að Boggi þetta var allt Helga að kenna.
En já, keppti knattspyrnuleik áðan og við töpuðum 3-1, það var 1-1 þangað til 5 mín eftir sko og við klúðruðum vítasp., semsagt ekki gott enda er einn kr-ingur í liðinu hjá okkur sem er ekki gott náttlega.
...þá það sem allir hafa beðið eftir en það er lag dagsins! og í dag er það hljómsveit sem var valin ein af bestu hljómsveitum allra tíma af sjálfum mér, en það er Fleetwood Mac og lagið er Rhiannon sem að er náttúrulega bara eitt af fjölmörgum snilldarverkum frá þessari mögnuðu grúbbu!
en þar til næst þá bara haltu áfram að verka fiskinn Boggi minn!
Mjög fyndið.. var að sjá endurtekið Kastljós væntanlega frá því fyrr í kvöld, þar sem fulltrúar stjórnmálaflokkanna voru í spjalli um komandi kosningar og baráttunna sem fylgir henni.. og svo málefnin.. þarna voru Halldór, Össur, Steingrímur og eikker kelling sem sagði varla múkk og svo sjálfur Dabbi kóngur.. það sem mér fannst athyglisvert var það að allir tóku þeir á því að fara rífa upp málefni um evrópumál, velferðamál og fl og það var rifist aðeins og á meðan sat Dabbi litli og sagði ekki múkk.. svo eftir dágóðastund kom hann og rakkaði þá og orð þeirra niður í rassgat.. frekar fyndið.. og það er eins og allt sem þessi maður segir sé rétt.. allavega vildi enginn mótmæla honum.. og ég verð nú bara að segja að sannfæringin var hans megin.. því hann sat þarna og sagði allt eins og hann vissi nákvæmlega hvað hann var að tala um á meðan hinir álfarnir voru bara bulla eitthvað út í loftið.. þá kannski aðallega Össur og Steingrímur.. þannig ég held að Sjálfstæðisflokkurinn og tja jú framsókn hafi unnið þessa lotu.. en bardaginn er ekki búinn enn..
Takið eftir líka það er eins og Halldór sé búinn að vera læra af Dabba pabba.. allavega eru taktarnir að verða svipaðir...
Gullkorn Dagsins
27.September
Hrokafull hálfmenntun er einn versti óvinur vits og hugsunar.
Sigurbjörn Einarsson
fimmtudagur, september 26, 2002
Gagnrýnisraddir mega skíta á sig
Vil nú ekki fara tala illa um Vestmannaeyjar.. enda er þetta eyjan mín bjarta.. en það er ótrúlegt hvað fólk getur látið vaða yfir sig lengi.. til dæmis með þetta Herjólfsmál.. ég hef þá tilfinningu að það verði sagt nei við því að fá nýjan Herjólf á þingi.. og hvað munu eyjamenn gera?? ekkert skal ég segja þér.. bara skrifa um þetta í Fréttum í sona 2 vikur og svo er það gleymt.. þá fara eyjamenn að benda á að ástandið sé ekki svo slæmt því að það verið að fjölga ferðum og þetta verði bara ok... þetta er bara eitt dæmið um skítlyktina við eyjar..( og ég er alls ekki að tala illa núna) =) hehe
Svo er það atvinnumál.. ég vil nú ekki tala mikið um það, en við skulum orða þetta þannig.. Eyjar eru algert holræsi fyrir ungt fólk.. það er bara þannig.. í eyjum geturu unnið í fisk eða verið á atvinnuleysisbótum.
Þá er mín útrás á eyjum komin fyrir þennan mánuðinn..
Gott að vita að þú sért á lífi Helgi minn..
En annars er það helsta að frétta í dag kæru vinir að Heiðursfélagi VKB sé að fara í framboð... er það satt minn kæri Forseti? Erum við að komast á þing?
Sælir aftur, nei ég er ekki dauður, ég er bara búinn að vera eitthvað latur við að kíkja á netið undanfarna daga, og því náttúrulega ekki verið í aðstöðu til að viðra skoðanir mínar hér á þessari fallegu síðu. Og já meðan ég man Gummi, fyrirgefðu að ég hafi ekki svarað þér þegar þú hringdir, en einhverra hlutavegna var ég ekki alveg í stuði til að "tjatta" kl. 05:30, þú getur bara átt þetta við mig síðar. Og annað Gummi, mig físir að vita hvaða stöðu að þú spilir í hinni göfugu íþrótt hamborgaralandsins. Ekki ertu fjórðungsbakur?
Jæja.. algerlega nýtt á nálinni hér.. kominn með sona Lífsreynslusíðu inspiered by Sigurjón Kjartansson og Co. Show... En þetta er síða þar sem ég mun reyna birta sem flestar þær lífsreynslusögur sem þið kæru Íslendingar hafið.. þið getið sent mér sögur á lifsreynsla@hotmail.com
Fylgisti vel með þessari spennandi síðu og þar er strax komin ein saga.
Góða skemmtun
pentun...
Var harðlega kríteseraður af unknown person á gestabókinni minni =) vegna skrifa minna um namm.is, maður gat svo sem getið sér til að þetta væri eitthvað solleis.. en samt í alvöru er það ekki svoldið mikil ættjarðarást að geta ekki farið frá landinu án þess að taka með sér eitthvað íslenskt að éta.. þetta minnir mann soldið á þegar fólk er búið að vera á spáni í 2 - 3 vikur og kemur heim og heimtar soðinn fisk.. hvað er málið með það?? það er til soðinn fiskur á spáni..!! fólk er bara svo geðveikt stundum.. ég hef aldrei þráð eitthvað íslenskt þegar ég er úti.. það kallast aðlögunarhæfni.. það hlýtur að vera eitthvað gott þarna úti..
annars er þetta allt bara á léttu nótunum, fólk á sinn rétt að fá harðfisk, pylsur og siríussúkkulaði eins og við hin..
Var að glápa á aldeilis stórfína kvikmynd sem Zindri gleymdi hérna heima einu sinni og hefur gleymt að ná í langan tíma, það er kvikmyndin Good morning Vietnam með stórleikaranum Robin Williams.. þetta er alveg súper mynd og er stútfull af gríni og skemmtun í bland við sorglegar staðreyndir víetnamsstríðsins... endilega takið hana sem fríspólu eða bara leigið hana á DVD.. enda mun betri gæði
Djöfull er þetta hentugt, ef mar er að fara á flakk um heiminn getur maður bara fundið sinn Subway stað.
Svo með þessu endalausa ráfi mínu fann ég ljóta síðu... take a look
Góðan dag..
það er oft gott að vakna kl 12.. en ég verð að hætta lifa sona vel á morgunn, en ég er að verða búinn í veikinni.. en samt stutt vinnuvika.. alltaf gaman í vinnu í föstudögum.. svo kemur bara HELGI!!! ekki Helgi Ólafsson heldur bara lok vinnuviku... þó ég eigi hana ekki svo mikið skilið en samt fock it...
Já Gummi þetta var athyglisvert.. gaman að sjá þú sért duglegur í skólanum.. hehe
En ég hef lítið að segja núna.. best að sofa þegar maður er veikur.. eða svo sagði mér eikker...
allavega kominn með nýjan link á Blogg hjá ÍBV stelpunum þar sem ÍBV íþróttafélag getur ekki gert fyrir þær heimasíðu er þetta það sem verður að duga í bili allavega..
Gullkorn Dagsins
26.September
Jörðin er allt og miklu meira en nóg
ef mennirnir kynnu að lifa...
Hannes Pétursson
miðvikudagur, september 25, 2002
jæja þá!
já borgþór það er gott að þú hafðir gaman af þessu símtali, en gærkvöldið byrjaði þannig að ég var á leiðinni að læra undir próf sem ég átti í dag og þá hringdi síminn og það var Guðni (kr-ingur) að byðja mig að koma út, ég náttlega á menntabraut og sagði "nei, ég ætla að læra" en svo þega ég var búinn að lesa 1 blaðsíðu þá var það bara "æi, fokk it!" og ég skellti mér á murphy´s þar sem flestir bræður mínir voru, enda fáum við borgað fyrir að koma þangað á þriðjudögum. Síðan voru þeir með 5 becks á $10 þannig að maður keypti nokkrar fötur og þegar barinn lokaði fórum við á eitthvern klúbb, þar sem Guðni gerði sig að fífli. og mér leið allavega illa í morgun þegar ég vaknaði, en það var bara helvíti gaman í gær og mér gekk bara helvíti vel í prófinu, enda gáfaður með eindæmum! Nettur!
en hérna lag dagsins er The brilliant dance með Dashboard confessionals, og þess má til gamans geta að ég er að fara á tónleika með þeim í næstu viku.
svo keppti ég fyrsta Ameríska fótboltaleikinn minn á mánudaginn og við unnum að venju 26-13, svo er það bara knattspyrnan á morgun, en þangað til næst þá bara "stay black"
smá breytingar í gangi.. þar sem það er algerlega nýtt væntanlegt hérna á síðuna.. sem mun verða alger bylting í dægrastyttingu á netinu.. þið verðið bra fylgjast með þessum nýjungum..
ahhh gott að hlæja.. þetta er örugglega bjánalegasta heimasíða á íslandi...
meina eru íslendingar orðnir svo feitir og latir að þeir nenna ekki út í sjoppu til að kaupa sér nammi??
Góðan dag.. er veikur heima í dag.. það er frekar slappt, en ég fékk skemmtilega upphringingu í nótt, svona um 5 leytið hringir bróðir minn og félagi Guðmundur Kr. Eyjólfsson vel í glasi!! var að drekka með eikkerjum Kr-ingum og voru að sumbli með ódýran bjór.. kannski að þú segir okkur frá þessu gummi??
Gullkorn Dagsins
25.September
Einmanna - það er að hugsa einungis um sjálfan sig og eignir sínar.
Björnstjerne Björnsson
þriðjudagur, september 24, 2002
jæja það er komið i lag... ótrúlegt..
hvað er að þessu blogg drasli núna?
Það hlýtur að vera alveg einstaklega leiðinlegt að vinna með mér.. allavega á þessum stað sem ég vinn á núna..
ég er með sona headphone allan daginn og yrði ekki á eina manneskju þarna.. og þegar eikker reynir að tjá sig við mig, þá nenni ég ekki að lækka eða taka tækið ofan af.. heldur brosi ég bara kjánalega og kinka kolli og held áfram að gera það sem ég var að gera... svo er ég yfirleitt með fýlusvip í vinnunni því þetta er svo ógeðslega leiðinlegt þannig ég skil það svosem vel að ég sé ekki vinsælasti starfsmaðurinn...
stundum þó nær fólk sambandi við mig.. eins og einn gerði um daginn,.. hann var eikkað að benda mér á að taka niður tækið.. og svo ég gerði það og þá segir hann.. vasta hlusta? ég horfi á hann einkennilega og vissi ekkert hvað hann væri að tala um, en segi á hvað??? á bylgjuna það er alveg merkilegt hvað þetta... bla bla bla.. og ég setti á mig heyrnartólið og heyrði ekki meira af þessari guðdómlegu visku sem hann ætlaði að troða yfir mig.. bylgjan já...
Gullkorn dagsins
24.September
Hjónaband er eins og býflugnabú þar sem hvort
hjónanna verður að láta í té meira hunang en það þarf sjálft.
Búlgarskur málsháttur
mánudagur, september 23, 2002
Vá.. bara komnar 100 heimsóknir á Ljóðasíðuna enda er hún sífellt að verða fjölbreyttari með fleiri og fleiri skáldum er leggja orð í belg.. þó ég steli nú flestum ljóðunum eikkerstaðar á netinu eða af e-mailum sem mér hefur verið sent..
en nóg um það.. þá er bara fara skella sér á ljóðasíðuna og skoða afrakstur þessara skálda..
Hvernig gekk svo Emman?
og Friends vann bara besti comedy þáttur
sko Forsetinn kominn með sitt ljóð
Vá þetta var djúpt sko....
En ég rakst á skemmtilega auglýsingu í Dv á Laugardaginn... það var í einkamáladálkinum og þar stóð eikkað í þessa áttina "Hulda, villtu gefa mér upp rétt talhólfsnúmer eða jafnvel símanúmer!!!!! svar sendist á (dv.. eikkað man ekki)"
Pæliðið í gaur sem fattar ekki!!! hehe hann hefur hitt eikkerja skvísu á djamminu fengið hjá henni talhólfsnúmer... af einhverjum ástæðum og það reyndist vitlaust númer... i wonder why.. kannski hefur hún mismælt sig.. hehe bjáni
Hér kemur Gullkorn dagsins í dag, en það gleymdist í gær enda var þetta ekkert sérlega gullkornalegur dagur í gær..
Gullkorn Dagsins
23.September
Takið kærleikann burt - og heimur okkar verður gröf.
Róbert Browning
var að spá í að koma með smá upplífgun fyrir hina fjölmörgu lesendur þessara síðu. En það er lag dagsins, eða allavega þess dags sem ég skrifa eitthvað. Ég ætla nú að byrja á einu rosalegasta lagi sem ég hef heyrt, veit að Þórir Ólafsson bróðir minn og Andri húgó hafa eitthvern tíman heyrt í þessu bandi, sem naut þó aldrei mikillar virðingar nema þá af kolsvörtum almúganum í hinni svörtustu Afríku. Já þetta er hljómsveitin Pink Floyd og lagið er Whish you were here, og mæli ég nú með því að þið haldið út í næstu hljómplötuverslun og kaupið disk með þessu lagi á, eða jafnvel náið í það á netinu?
En þar til næst þá bara "friður út"
Já sælt veri fólkið.
hef ekki gert mikið um helgina nema að vinna, en fór út á fimmtudaginn, eitthver klúbbur sem er svona hálftíma í burtu vildi endilega fá okkur bræðurna til sín og sendi 2 límmósínur á eftir okkur, og ein var svona venjuleg limma bara, en hin var 26 manna exscursion stretch dæmi eitthvað með 6 sjónvörpum og rúmi aftur í og dæmi sko, en kvöldið endaði allavega þannig að ég vaknaði heima og vissi ekki alveg hvernig ég komst heim, en var með bíllyklana mína í vasanum og bíllinn fyrir utan, þetta er í síðasta skipti! annars fór ég á Am. fótbolta æfingu áðan og það var bara nokkuð gaman, við erum með 2 lið A og B og ég er að sjálfsögðu í byrjunarliðinu í A, þess má svoan til gamans geta að þetta er þriðja íþróttin sem ég er í byrjunarliðinu! NETTUR! og fyrsti knattspyrnuleikurinn okkar var á fimmtudaginn, entist í 1 mínútu og var þá flautaður af vegna rigningar.
Síðan er ein stórfrétt, nokkuð sem hefur ekki skeð í yfir 2 ár, en það er að Gunnar Már Tuskuhár er kominn með vinnu, skilst mér allavega og þykir mér þetta vera alveg ótrúlegt, en satt!
laugardagur, september 21, 2002
Jæja eitt nýtt ljóð komið í Ljóðahornið eftir nýjan höfund meira segja...
Orð til hennar móður þinnar!
Jæja það má nú ekki gleyma Gullkorni dagsins..
21.September
Hverf er haustgríma.
Hávamál
föstudagur, september 20, 2002
Ódýrasta flug á markaðnum??!! held það barasta..
Það er svo oft sem fólk reynir að gabba sjoppufólk með því að kaupa sér kannski hamborgaratilboð með kóki og reynir að fá auka kók með, seigst ekki vera búinn að fá kókið þegar i raun mar er búinn að fá solleis...
hvernig væri að prófa nýtt gabb?? koma með sitt eigið kók inn í sjoppuna, og þegar stúlkan kemur með kók handa manni, þá segja bara hey ég er búinn að fá kók.. Vá.. pæliði í svipnum á henni ómetanlegt..
Slöpp helgi framundan.. eða sona.. það er eikkað fóboltatilla kjaftæði á morgun, ekkert nema fótbolta tillar og pjásur að djamma saman.. er það stuð? veit ekki..
Það væri aftur á móti fínt að vera í Rvk "borg óttans" á morgun því það er snilldar djamm á Gauknum annað kvöld. Undirtónar halda partý og ekkert venjulegt partý, heldur ammlispartý.. snilld
Gullkorn dagsins
20.September
Vitur maður les bækur og einnig lífið sjálft.
Lin Yutang
Svo á hann Sigurjón Kjartansson fæðingardagshátíð í dag til hamingju..
fimmtudagur, september 19, 2002
Hvað ef Tryggingamiðstöðin væri Kellingamiðstöðin og það væri athvarf fyrir gamlar trukkalessur sem gengu ekki út?
Vá.. fann ég eitt gamalt og gott á strik.is eða hvað?!? þetta eru gömlu númerin hans Þorsteins Guðmundssonar.. mæli með þessu!!!
Ok ... Fm957 er ógeðsleg stöð.. (næstum því ógeðslegri en Bylgjan sem ég ætla ekki einu sinni að eyða orðum í)... málið er samt að ég villtist inn á að hlusta á Fm957 eftir Kl:11:00 í morgunn því að hún Magga greyið getur stundum spilað svo leiðinlega tónlist.. en allavega þá er þetta svo ógeðslega yfirborðskennt og viðbjóðslegt á Fm.. allir í stuði alltaf og svaka happý.. þetta er óþolandi.. og í raun verið að tala niður til manns..
Mér finnst því undarlegt að eikker skyldi hlusta á þessa stöð, það eru þó samt aðallega stelpur sem hlusta, því að rokkið er too much fyrir þær flestar.
RadioX er einfaldlega lang besta útvarpsstöðin á Íslandi,þó er ég sammála að það mætti athuga tónlistina sem tróðst inn með X-inu þegar sameiningin var.. Það er eitt sem mér finnst persónulega best við þessa stöð, það er að það eru enginn látalæti né uppgerðar og pretend læti í þeim.. það er bara blákaldur veruleikinn.. og ekkert verið að fegra neitt.. það er t.d óþolandi þegar fólk er að passa hvað það segir eins og á öðrum stöðvum..
Líka eitt.. og ég ætla þá aðeins og nefna gamlan og góðan þátt sem eitt sinn var á RadioX, það er Tvíhöfði gamli og góði.. það var svo frábært að hlusta á þennan þátt, því að Sigurjón og Jón komu bara til dyra eins og þeir voru klæddir og ég meina það versta sem hægt er að gera í morgunþætti er að reyna fegra heiminn.. eins og að vera svakalega hress og allt svo frábært.. það er bara bull.. Life sucks og það er málið...
ég hugsaði milljón sinnum í dag hvort eikker myndi taka eftir því að ég myndi öskra úr mér líftóruna sona upp á fönnið... en ég ákvað að sleppa því að reyna á það..pæliði í að sleppa sér bara einn daginn... ég veit ég myndi gera það ef ég myndi vinna þarna í meira en sona.. tja 2 mánuði..
Ohh.. byrjaði eikker miðaldra leiðinleg kelling að vinna í dag.. og vitir menn hún er strax farin að segja öðrum til hvernig eigi að gera hlutina.. ég hata sona fólk... svo vill hún alltaf vera segja mér eitthvað.. en ég er með útvarpið á hæstu stillingu og heyri að sjálfsögðu ekki rassgat, núna horfi ég bara til hennar þegar hún er að tjá sig, bíð eftir að hún hætti að tala þá glotti ég bara.. virkar fínt..
það er samt eitt fínt við þessa vinnu.. það eru bjánarnir sem eru þarna.. það var t.d einn sem nennti ekki að bíða eftir að lyftarinn kæmi og ætlaði bara ýta fullu 1000 lítra kari í burtu.. ekkert mál.. ég redda þessu, þarf enga helvítis lyftara hér..
Alger nýjung hérna í dag.. þar sem að klukkan er orðin 00:00 er kominn nýr dagur og með nýjum dag fylgja ný ævintýri eins og skáldið sagði. og þess vegna ætla ég að láta hvern dag byrja með Gullkorni dagsins
19.september
Heimskingjar margir hópast saman,
hefur þar hver af öðrum gaman.
Eftir því sem þeir eru fleiri
eftir því verður heimskan meiri.
K.N
miðvikudagur, september 18, 2002
VÁ... Bíóið var að koma úr sumarfríi í eyjum.. já það er tekið bara sumarfrí hérna...
Þetta er eitt af þessu týpísku óþolandi dóti sem hrjáir þennan bæ, það er bíóið.. Við áttum einu sinni fínasta bíósal sem nú er samkomuhús Hvítasunnusafnaðarins. Málið er að það átti á sínum tíma að fara selja þetta hús.. sem var þá aðal samkomuhús bæjarins.. þarna voru allir dansleikir haldnir og svo var bíó líka þarna.. Sambíóin vildu kaupa þetta hús og gera þarna flott og nýtt bíóhús líkt og þeir hafa gert á Ísafirði, Akureyri og Keflavík ef mig minnir rétt. Þeir voru komnir með tilboð sem var bara nálægt því að vera í það hæsta sem bærinn gat fengið fyrir það.. en af einhverjum ótrúlegum ástæðum höfnuðu þeir Sambíóunum og samþykktu tilboð Hvítasunnusafnaðarins sem gat ekki borgað shit fyrir húsið og hefur varla borgað krónu ennþá daginn í dag.. og það er ekki hægt að henda þeim út úr húsinu. því að það er kross framan á húsinu.. þetta er óþolandi.. ég er ekki að segja að ég sé eikkað á móti Hvítasunnusöfnuðinn endilega.. bara svona furðulegir samningar eiga ekki að gerast..
skil þig vel Gummi en ég held að flestir aðrir geri það ekki... ekki prentvænt
En hvað er að fólki?? ef það hefur ekkert betra að gera við peninganna af hverju ekki að senda mér þá??
hann er nú reyndar freeekar furðulegur greyið...
...kominn með eina skemmtilega staðreynd, kannski finnst Bogga þetta bara kúl s-enda einn af fáum sem veit hvað ég meina. En ég var rétt í þessu að hlusta á tónlist, og heyrði þar einmitt þessa línu "vaknar altaf Þráinn," reyndar fylgir þessu línan "í brjóstum á ný" en það splittar kannski ekki svo, þetta er í því ágæta lagi Vorkvöld í reykjavík. En það er gaman að þessu, það er ekki nóg að Þráinn vaknaði í dalnum hér um árið, heldur er það nýjasta að Þráinn vakanr alltaf!
NETTUR!
þriðjudagur, september 17, 2002
Ég veit ekki.. ég ætla ekki að krítesera þetta neitt.. bara lesið þetta og hugsið um hehe... já bara lesið þetta... úff.. hehe
Lífsreynslusaga!!!!!
Já já, svaka stuð hjá mér í gær. Fór í þennan líka fína tuðrurúnt umhverfis okkar fögru Eyju ásamt tveimur vinnufélögum mínum, þeim Hannesi Kristni og Tryggva Má. Hannes ákvað að viðra björgunarsveitar tuðruna aðeins og bauð okkur Tryggva með, einnig skildist mér að Sigfúsi barmanni og framkallara hafi verið boðið að kíkja á rúntinn með okkur, en ekki séð sér þess fært vegna anna. Það var alveg lýgilega gott í sjóinn miðaða við að það væri miður september og var alveg steindautt hérna austan við Eynna og gátum við keyrt tuðruna alveg í botni þar, sem var mjög gaman. Síðan kíkti maður á eina vídeó-spólu eftir túrinn, og varð fyrir valinu myndin Don't say a word með Zetu serðinum Mikjáli. Þetta fannst mér bara vera fínasta flikka með fínu plotti og góðum leik, nema hvað að mér fannst endirinn fara út í alltof mikið svona Hollywood-hetju-dæmi. En að öðru leyti fín mynd sem ykkur er alveg óhætt að kíkja á (nema Bogga hann virðist hafa annan smekk á myndum en flest fólk :))
Og svo ég svari spurningunni sem þú skelltir fram hérna fyrir neðan Gummi, þá ferðu náttúrulega klæddur sem playboy kanína ;)
Alltaf jafn skemmtilegt og uppbyggilegt sjónvarpsefni á Ríkissjónvarpinu. Það var þáttur þar í gær um geiminn.. allt gott og blessað með það, alltaf gaman að sjá geim-eikkað.. hvort sem það eru sjónvarpsþættir, kvikmyndir eða sona heimildaþættir eins og í gær.. nema hvað að þessi þáttur var bara um það að það séu milljón halastjörnur út um allt og það er bara spurning um tíma hvenær það kemur einn stór hlunkur og klessir á jörðina og eyðir öllu.. líka var verið að segja frá öllum svartholunum sem eru hérna út um allt og það sé ekkert hægt að sjá þau fyrr en alltof seint og þá verðum við öll löngu dauð.. og bla bla bla..
Það kom örugglega um 30 sinnum fram í þættinum að við værum öll að fara deyja á eikkern ógeðslegan hátt.. þetta kallar maður uppbyggilega og hressandi þætti sona í síðdegisþunglyndinu.. hehe
Jæja nokkur ljóð komin inn eftir Gvend og listamanninn Ekki ég
Óþolandi rugl alltaf hreint.. núna er kominn þessi argasti dallur til Eyja og á hann að sigla hérna á milli landa og Eyja í um það bil mánuð á meðan Herjólfur er í slippi í Noregi. Baldur er ekki gott sjóskip né getur það afkastað því sem þarf til að halda uppi samgöngum hérna á milli. Það virðist ótrúlegt að það sé svona vonlaust mál að fá stærra og betra skip til Eyja til að leysa Herjólf af hvað þá til að leysa Herjólf af til frambúðar.. því það er nokkuð ljóst að það er orðið löngu tímabært að fá stærra skip. Það er þegar búið að finna ferju sem ætti að geta leyst Herjólfinn af en það er eikkað vandamál í gangi.. menn tíma ekki að eyða peningum.. en það er endalaust hægt að spreða í jarðgöng einhverstaðar út í rassgati fyrir bæjarfélög sem eru ekki stærri en 1000 manns.. Í eyjum búa um 4400 manns og þetta er einn stærsti ferðamannastaður landsins og það er ekki hægt að punga út fyrir einni helvítis ferju fyrir skerið!! En vonandi eru breytingar í loftinu, það á að vera fundur í Eyjum 20.sept um samgöngumál og ég held að þar muni mæta samgönguráðherra og Co. til að ræða málin, enda löngu kominn tími til..
Það er samt vonandi að það sé hægt að koma inn á langtímaplan fyrir jarðgöng hérna á milli.. það er búið að sanna það að það er alls ekki ógeranlegt að brúa bilið en við sona stórar framkvæmdir eru menn alltaf hræddir.. það ættu kannski fyrirtæki að koma með í að fjármagna þetta enda gæti þetta haft töluverð áhrif á rekstur þeirra. Eins og t.d Eimskip, ef göng kæmu hérna á milli væri styttri siglingartími til landsins frá Ameríku og Evrópu, því að eins og kannski flestir vita eru Vestmannaeyjar syðsta höfn á landinu, með göngum væri hægt að flytja aðal fluttningarhöfn Eimskips til Eyja og spara mætti í fluttningum...
bara smá hugmyns.. =)
En ég hvet alla þá sem geta mætt á þennan fund þann 20.Sept að mæta.. hann verður Kl:20:00 í Höllinni..
Þvílíkur Sækó maður... ég reyndar verð að viðurkenna að ég glotti eilítið yfir þessu með menningarnótt og það.. en þetta er samt too much... en svona er þetta víst.. það er til mikið að geðveiku fólki þarna úti... =)
mánudagur, september 16, 2002
Vey! sælt fólk, fór í bíó á Stealing Harvard með Tom Green og Jason Lee og hún var bara ekkert svo léleg, bara ágæt sko, greinilegt að greenarinn hefur lært af freddy got fingered og var ekki alveg jafn mikið fífl í þessari. En gaman að segja frá því að ég er nokkuð viss um að ég sé puttabrotinn, á að fara til læknis á miðvikud., fékk ekki tíma fyrr því ég var ekki pottþéttur á að vera brotinn. Síðan bilaði bíllinn minn í gær, en er í viðgerð núna og fékk bíl lánaðan hjá pabba á meðan sem er bara miklu betra.
..og síðan er það heitasta á veraldarvefnum í dag, það er hann Finnur Freyr Harðarsson sem var að opna blogg síðu og er ég nokkuð sannfærður um að það komi ekkert af viti fram þar, en nóg verður af ruglinu.
Síðan er rosa partý á föstudaginn og náttlega svona þema bull eitthvað, sem er Hugh Hefner og playboy kanínur, hver er með hugmyndir um hverju maður ætti að fara í???
Sá kvikmyndir í gær..
Birthday girl með Nicole Kidman og Ben Chaplin. Þetta er ekki neitt svakalega góð mynd.. það gerist eiginlega ekki rassgat í henni þar til bara síðustu 30 mín eða svo... frekar leiðinleg eiginlega bara.. og ég nenni varla að eyða fleirum orðum í það.. í prenti.. :Þ
svo sá ég mynd á eftir henni (fríspólan sko) sem lagaði kvöldið.. en það var myndin Idle hands sem er alger snilld!!! þeir sem vita ekki neitt um hana þá er þetta ekkert svakalega gömul mynd kom út '99 minnir mig, og það eru snillingar eins og Seth Green (Austin Powers myndirnar) jessica alba (grrr...) og Devon Sawa (Slackers) sem leika í henni auk fleirum snillum... þetta er bra brill mynd um algert rugl.. ráðlegg fólki að láta hana fylgja með nýrri mynd næst..
Pældí ömurlegt að vera sona hataður uppfinningarmaður.. eins og gaurinn sem fattaði upp á sona Industrial klósettpappír sem sker rassgatið á manni í hengla.. eða gaurinn sem fann upp á umferðarljósum..
Það er eitt sérlega undarlegt með faðir minn.. hann Geira múr. Þetta er ákveðið vandamál sem hefur áhrif á heimilið en það er að hann sættir sig við allskonar drasl.. og kaupir venjulega heimilistæki, ekki vegna gæða heldur bara ef það er nógu ódýrt og henntugt að kaupa á þeim tíma.. Þetta hefur gert það að verkum að ég er afar vandlátur á tæki, og vill aðeins kaupa það "besta" því ég hef kynnst því versta.. (ohh.. flott orðað maður..) Það afturá móti hefur hamlað soldið á því að ég eignist eikkað, því að það besta er yfirleitt dýrt.. mjög dýrt..
En dæmi má nefna um kaup hjá föður mínum, þá vorum við t.d eina fólkð örugglega á Íslandi sem áttum ennþá Beta vídjó tæki eftir að VHS kom á markaðinn.. við þurftum alltaf að fara í vídjóleigu einhvert lengst í buskan því það var eina leigan sem var enn með Beta.. og það var pínulítið horn sem var rekki með þeim spólum.. það var ekki mikið úrval og það endaði oftast á því að það var glápt á Never ending story sem var í það skásta sem til var..
Annað dæmi þá áttum við síma sem hét Panaso anic... skemmtilegt það.. sá sími entist reyndar í eikkerja 5 mánuði og þá dó hann líka alveg
Svo er það vídjóið sem við eigum í dag, það er orðið nokk gamalt. en það heitir því ágæta nanfi VHS ... já bara VHS ekkert meira.. þetta er eikkað það alversta rusl sem ég hef þurft að nota á ævinni...
Ég gæti haldið áfram sona í allan dag, en því miður fyrir ykkur sem lesið þá verð ég að fara í vinnuna..
Já já verið að halda áfram með skítkast hérna... hehe En já er það ekki framtíðin Gummi? að vera nörd? ég veit ekki..
BetaRokk hefur svosem ekkert gert merkilegt.. það er reyndar að koma út bók eftir hana fyrir jólin.. hún er bara ein af þessum semi-celeb sem varð til vegna Sigurjóns og Jóns í þættinum Tvíhöfða gamla og góða..
sunnudagur, september 15, 2002
já Boggi er þetta spurning að vera kominn í góðan hóp manna þegar þú bloggar drukkinn??? Ég er reyndar ekki alveg viss um að það sé kúl, gæti jafnvel eitthver sagt að þú værir tölvunörd en er það kannski það sem þú ert að leitast eftir? annars veit ég ekki hvernig kvennamálin eru hjá þér um þessar mundir og væri gaman ef þú kæmir með smá uppdeit á það, Nettur!
eitt enn, hver er þessi Beta Rokk og hvað hefur hún gert til að vera svona eitthvað, hef heyrt talað um hana en hví veit ég ekki, og hví að setja link á hana, þar að segja Betu?
laugardagur, september 14, 2002
Já Helgi minn þetta eru einstakir hæfileikar sem ég hef og ekki margir geta státað að því sama.. en þetta var frekar súrt djamm í gær!! enda ætlaði ég ekkert á djamm, ég Zindri og Gummi vorum hérna heima að skrifa eitt lítið handrit og það fylgdi að sjálfsögðu bjór með því. Við ætuðum svo bara að kíkja á mánabar eftir það og fá okkur aðeins í tánna þar, en við vorum það lengi að þessu að klukkan var orðin 15 mín í 2 þegar við fórum út.. þannig það var ekkert annað en að fara á Keisaran.. og djöfull var slappt þarna, ekkert nema gamlir kallar..
Váááá, Boggi þetta er ótrúlegt, þú hefur verið það drukinn þegar að þú skrifaðir þetta hérna fyrir neðan að þér hefur tekist að skrifa þoglumælt!
Æji Gummi enga smámunasemi.. þetta hljómar betur sona..
en ég nenni ekki að skrifa mikið þar sem ég er undir áhrifum áfengis.. en er það samt ekki bara good thing? það er spurningin...
En nýtt samt.. ég náði mig sjálfum að því að vera lesa bloggið hjá þeim vinsælustu í síðustu viku á hverjum degi.. er það ekki aoldið mikið fan.??? eða er það bara geðveiki eða er það bara leiðindi.?? við sjáum til.. ég allavega er alveg að hafa gaman af þessum síðum
föstudagur, september 13, 2002
Já góðan dag
...mér langaði nú bara að segja frá því að ég fór í knattspyrnu í gær. En það er nú ekki allt, þessir árans kanar hafa engin takmörk fyrir aumingja skap, ekki nóg með að þeir spila rúgbý í brynvörðum galla og það kjaftæði, en já í knatsspyrnuleiknum í gær þá höfðu kanarnir þá reglu að það væri bannað að tækla eða bara renna sér yfir höfuð, þá var aukaspyrna! ég get nú ekki sagt annað en að ég átti bara ekki orð, ég meina afhverju spilar fólk þá ekki bara tennis eða fer að skokka í staðinn! ...en allavega þá var ég ekki hrifinn. En í kvöld fer maður í ammlis veislu hjá ryan nokkrum walters bróður mínum og mun þá eflaust vera kátt í höllinni!
p.s. Boggi þetta með áreksturinn á "info" síðunni er vitlaust! þetta var sitthvor áreksturinn og á sitthvorum bílnum! "NETTUR"!!!
fimmtudagur, september 12, 2002
Ok smá kvikmyndagagnrýni hérna...
ég sá Blade 2 í gær.. og almáttur hvað þetta er ógeðslega klisjulega viðbjóðslega asnalega ógeðsleg mynd.. ég átti von á slæmu en ekki svona slæmu.. Eini góði punkturinn í myndinni var hugmyndafræðin bak við þetta allt rugl.. það er að detta þetta í hug, + í kladdan þar en allt annað er bara rugl.maður sá ótal mörg mistök í henni og er eiginlega soldið fyrirsjánaleg. Það sem átti að koma á óvart í myndinni var bara asnalegt og kom mjög kjánaleg út bara eins og þaier hefðu bullað eikkað í lokinn til að lengja myndina og gera meiri sona "óvænt atriði" þvílíkt kjaftæði....
auk þess sofnaði ég yfir henni í lokin, sá ekki blá endirinn og mér er svosem alveg sama.. ráðlegg fólk að taka hana ekki ef það lætur sona myndir fara í taugarnar á sér..
hún fær * af 5 mögulegum...
kúkur í bala
Þá eru komnar sona upplýsingar um okkur strákanna.. hérna á Info síðunni.
Ég verð að gefa þér GOTT klapp fyrir þetta gagnvirka ljóð.. mun skemmtilegra en venjuleg ljóð.. hehe sérlega flott þessi síða sem kemur hjá nafninu hans Gumma..
Snilldin ein, í þættinum hjá Sigurjóni og Þránni í morgunn var tekið fyrir stórhljómsveitina Tenacious D sem er bara með þeim betri sem um gerist í tónlistabransanum í dag.. eða svona hérumbil.. vildi minna á þessa snilldar heimasíðu þeirra www.tenaciousd.com en þar er hægt að finna myndbönd og allskonar flottheit tengt hljómsveitinni...
Þess má til gamans geta ef einhver verður á ferðarlagi um norðurlöndin í nóvember, þá verða tónleikar með þeim þann 3.nóvember næstkomandi í Stokkhólmi. Ekki missa af því
já gaman gaman, ég var að horfa á sjónvarpið á svona 9/11 special eitthvað og þeir segja að þetta hafi verið alveg svaka dæmi, en þegar maður fer að spá í litla íslandi þá er allur þessi dauði sem var í fyrra svipaður og að bíll með 3 manneskjum myndi keyra útaf og allir deyja. sem yrði kannski ágætis frétt í dag eða tvo, en það væri náttúrulega ekkert skipulagt af eitthverjum fávitum með 5 konur.
síðan var ég nú líka að spá hvað það er yndisslegt að vera í bandaríkjunum þegar þeir eru byrjaðir að undirbúa árás á írak, sérstaklega þegar kemur í fréttum að írakarnir séu með töluvert af efnavopnum og jafnvel eitthvað af kjarnavopnum, jibbí!!! En ég er nú búinn að lifa ágætu lífi og mundi sætta mig við að fara, eða kannski betra eftir þjóðhátíð held ég.
...og Helgi Möller þetta var ágætt ljóð hjá þér og aldrei að vita nema ég svari á næstu dögum og vikum
miðvikudagur, september 11, 2002
Jæja þá Guðmundur. Eitthvað skildist mér að þú værir farinn að vera langeygur eftir bloggi frá mér; svo gerðu svo vel.
Boggi mig langar rétt aðeins að benda þér á eitt, þar sem þú varst að minnast á þessa yndislegu líftryggingu og að það væri svo gott að fá hana greidda út ef þú dæir ekki, það deyja allir einhverntíman! En nóg um það, ég vil bar óska þér til hamingju með að einhverjum þáttarstjórnanda á einhverri útvarpsstöð hafi fundist þitt ómerkilega líf þess virði að vera eyða tíma sínum og hlustenda í að vera þylja upp sög af því þegar þú einvherntíman í fyrndinn þurftir að hanga í stætó í einhvern smá tíma. En samt til hamingju :) Og já til hamingju með fyrirtækið líka!
En Gummi hvað ertu nú eiginlega að pæla derngur XXX-Rottweiler............. Ég taldi þig nú vera með betir smekk á tónlist en þetta, USA er greinilga farið að hafa áhrif á þig! Slæmt þykir mér það nú! En varðandi þennan bikarleik þá vil ég bara segja eitt, þetta spara manni þá ferð á þennan helvítis úrslitaleik sem við töpum nánast alltaf (ég er enn þá fúll út í sjálfan mig fyrir að hafa ekki farið á Leiftursleikinn). En samt gott hjá peyjunum að ná þó þetta langa, sér í lagi miðaða við gengi liðsins í deildinni. Ég ætla ekki að fara að opna þá ormadós hér :) Eitt enn Gummi; hvernig datt þér í hug að fara í bíó á myndir sem heita Fear dott com og Swimfan. Mér er spurn!!!!!!!!!!!!
Fallegt veðrið úti.. ég farinn út
Jú ég segi nú bara sona Guðmundur minn.. en ég er ekki mikið fyrir að birta eikkerjar svaðilsögur af mér hér.. þar sem svo "Breiður" hópur er farinn að lesa þetta rugl...
En ég gleymdi nú að nefna það áðan Gummi að það var ekki aðeins lesið úr Blogginu mínu, heldur fékkstu þinn skammt og ert að verða allþekktur fyrir ljóð þín núna.. reyndar voru ekki þau bestu lesin.. minnir að það hafi verið ljóðið Kex...
Já Borgþór það er gaman að þessu að sjálfur Sigurjón Kjartansson hafi lesið þessa "snilldarsögu" hjá þér. En á ég að trúa því að það sé bara þetta þrennt sem stendur upp úr í þínu lífi?? það hlýtur að vera eitthvað meira, hvernig var með Loverboy partýið, sápuóperu-sunnudagurinn á þjóðaranum, þegar stúlka nokkur leyfði þér bara að sleikja brjóstin?? man ekki meira í augnablikinu, en þú ert nú 2 vetrum eldri en ég og reynslunni ríkari. Kannski að maður ætti að líta til baka og rita eitthvað af þessu niður, en reyndar þá hefur það aldrei verið mín sterkasta hlið að koma frá mér sögum.
Svo var éf að opna útibú í Sviss
og hér sjáum við búðina mína
já ég var að opna nýtt fyrirtæki á Ítalíu.. endilega skoðiði heimasíðuna mína hér
Jæja, ætlunarverkið tókst.. það er að segja að fá eina af Lífsreynslusögunum lesna í þættinum hans Sigurjóns Kjartanssonar og Co. og var það hryðjuverkið mitt í dag 11.september.. takk fyrir.. Fyndið samt að af öllu sem maður hefur gengið í gegnum tíðina að það séu þessar 3 lífsreynslusögur sem standa uppúr.. frekar sad sko.. hehe
en ég er nú svo frægur að komast ekki bara í lífsreynslusöguna sem er með vinsælli þáttaliðum í þættinum heldur var ég líka Blogger dagsins og þakka fyrir..
En þrátt fyrir að það var lesið úr þessu frábæra Bloggi mínu var hann Þráinn allkosta ekki hrifinn af skrifum mínum og er oftast ekki hrifinn af Bloggum almennt.. sagði þar á meðal að þetta væri bara eikkað vinalaust pakk sem hefði ekkert betra að gera.. það getur svo sem verið en ég held að þetta sé frekar einhver tjáningarþörf hjá fólki líkt og skrifa í fjölmiðla eða annað slíkt..
Fyndið hvað maður heyrir alltaf eitthvað annað í lögum.. lagið Highly evolved, heyri ég alltaf Hollywood Bowl.. pæliði í því
þar sem maður var nú aðeins byrjaður að gagnrýna eitthvað þá verður maður aðeins að halda áfram...
ég fór tvisvar í bíó í vikunni og báðar myndirnar sökkuðu!
fyrst var það Fear dot com, sem er hörmung ef eitthver fer á hana þá eruði fífl (sama hvernig þið túlkið þetta með hana (nn)), það eru eitthverjir fávitar að leika í henni, en eini ljósi punkturinn var að lagið Sonne kom í myndinni og vakti mann aðeins.
Síðan var það stórmyndin Swimfan og ætti Borgþór að kannast eitthvað við þann titil, þar sem hann átti marga aðdáendurna þegar hann var að iðka sundíþróttina ásamt fleiri mætum mönnum. En allavega þá er þetta eitthver svona ofsatækis aðdáenda mynd þar sem að lífið er eyðilagt fyrir sundgarpinum og er þessi mynd alveg hundleiðinleg og ekki fara á hana heldur!
síðan bara til hamingju íbv með að hafa ekki komist í bikarleikinn!!
Vá Borgþór, hvernig í fjandanum nenntiru þessu!?!, það er greinilega ekki mikið að gera í fiskinum, en hins vegar ef við eigum að líta á björtu hliðarnar þá ertu kominn í flokk með góðum mönnum sem hafa gert fiskvinnslu að sínu lifibrauði, s.s. Óli pétur Sveinsson, Haukur Þreytti, Höddi pönk, viðar Togga og fleiri...
En annars þá er búið að vera svaka mikið að gera hjá mér undanfarið, en þegar ég skildi síðast við ykkur þá var ég einmitt á lei'ð minni á svokallað stefnumót og vill svo skemmtilega til að ég er einn mest sjarmerandi maður í heiminum, þannig að ég heillaði stúlkuna upp úr skónum og var þá eftirleikurinn nokk auðveldur, er að spá í að fara að byrja að skrifa ´bók "hvernig á að heilla hana upp úr skónum" nettur! en þó í alvuru talað þá er þetta yndislegasta stúlka og meira um það seinna.
...já Boggi þú varst að tala eitthvað um hljómsveitirnar sem eru að meika það út í hinum stóra heimi, ég var nú búinn að tjékka aðeins á þessu og er ekki enn búinn að hitta mann sem veit hvað sigurrós er, en það hafa nokkrir heyrt í Quarashi, en það sem er það vinsælasta í bílnum mínum umj þessar mundir eru xxx rottweiler sem eru bara nokkuð nettir, keypti mér diskinn á leiðinni út og held ég kunni hann utan af núna! síðan eru náttlega Land & synir alveg á barmi þess að meika það! hmmhm. En hins vegar þá erum við félagarnir hér á leið á tónleika á næstunni með stórgrúbbunni Dashboard Confessionals sem eru fínir en það er ekki fyrr en 1. okt.
En hvar er Helgi ólafsson Forseti og fleira??? bið að heilsa þar til seinna!
|