Próf og HaffiBúinn að fá út úr öllum prófunum og ég náði þeim öllum.. sem er gott.. fékk 7.5 , 7.5 og 6.5 sem er ágætt svosem en ekki nógu gott.. þarf að taka mig betur á held ég.. allavega ef maður ætlar að ná þessari blessuðu 1.einkunn...
Fékk skýrsluna í pósti áðan sem ég gerði fyrir þroskasálfræði, Sigurður var mjög sáttur við hana og gaf mér 9 fyrir hana.. verst að helvítis lokaprófið lækkaði lokaeinkunina niður í 7.5... súrt..
En svona er þetta bara
Annað.. þeir sem ekki eru búnir að sjá Haffa smáa slá í gegn geta séð það hérna: http://www.andrihugo.com/video/hja_ther.asf
Eitthvað vesen á bloggernum hjá mér.. get ekki sett inn link sko...
3 áraHurðu.. síðan bara orðin 3 ára.. það er nú aldeilis lukka
Byrjaði á þessu rugli 28.maí 2002.. sem er orðin dágóður tími í að skrifa vitleysu..
Mín fyrsta færsla hljóðaði þannig:
æji fokk helvítis djöfull.. ég sagði að ég kynni ekkert á tölvur..var búinn að skrifa þessu flottu byrjun en hvað?? nei allt strokaðist út.. hmm og ég ýtti á POST... hvaða helvíti er það??
Ekki góður árangur það..en maður hefur svo sem lært betur á þetta og kann ALLT í dag..eða svona næstum því
En annað í fréttum er það að maður er bara búin að vera hangsa og rúnta síðan maður kom í land, það er ágætt að Siggi "279" og Haffi smái eru líka í fríi annars væri maður orðinn geðveikur...
Fórum einmitt í smá rúnt í gær, reyndum að fara í kringum fellið, og þá meina ég ekki Helgafellið.. og Haffi braut drifið í jeppanum sínum.. góður árangur.. skemmtilegt ævintýri!!
En annars verður nóg að gera fram að Aðalfundinum sem verður haldinn næstkomandi laugardag.. það hefur borist mótframboð í forsetastól og hörð kosningabarátta framundan hjá Helga kallinum... 3 umsóknir bárust til nýliða inn í VKB og kosið verður um þá á laugardaginn.. nokkuð magnað..
En jæja..