Jæja þá er maður búinn að útskrifast... Og þetta var nú mjög skemmtilegur dagur verð ég að segja... Maður byrjaði daginn á því að fara upp í Háskólabíó til þess að taka á móti skírteininu sínu við vorum alls 336 að útskrifast frá Háskóla Íslands og vorum minnir mig 25 að útskrifast með BA próf í sálfræði... með þeim síðustu sem fær BA próf í sálfræði enda byrjar að kenna til BS prófs í sálfræði næsta haust þar sem sálfræðin er komin inn í heilbrigðisvísindasvið. En jamm eftir fína ræðu rektors og nokkur lög þá var slúttað þessu og haldið heim í kaffiboð.. eða heim já.. það var reyndar í Verðandi íbúðinni þar sem familían var öll sömul... boðið upp á allskonar gúmmelaði!
Eftir fjölskylduboðið var svo haldið á Players þar sem partýið byrjaði.. og það var vel mætt og mikil stemmning... Ég hafði þetta bara einfalt og bauð fólki upp á bjór og eurovision partý og svo ball með kántrýsveitinni Klaufum... Síðustu gestir voru að skríða heim um 6 frétti ég... Svo ég er nokkuð sáttur!
Auðvitað fékk maður heilan helling af gjöfum... blóm, glös, freud spákúlu, bækur, rauðvín, viský, myndir, leikir, myndavél frá fjölskyldunni og svo 32" sjónvarp og heimabíó frá helsta fólki innan Vöku og VKB og má segja að ég hafi verið nokkuð orðlaus þegar ég var að rífa upp pakkann..
Ég gleymdi nú alveg að minnast á tónlistina í myndinni Weirdsville þegar ég var að þykjast vera kvikimyndarýnir... en já músíkin er semsagt fín en þó aðallega eitt lag með kanadísku hljómsveitinni Blackie & The Rodeo Kings sem heitir Stoned. En ég er eiginlega búinn að vera með þetta lag á heilanum síðan ég sá myndina... Ég kem því með tjaaa... skulum kalla það "Sunnudagsfílinginn" á þessu ári
Það er alveg spurning um að kíkja nánar á þennan þátt.. sá stutt uppistand með honum í fyrra og við peyjarnir veltumst um úr hlátri... hann er alveg þokkalega góð eftirherma þessi gaur!
Ég er þá held ég búinn að senda flestum.. er svona að reyna hafa upp á e-maili hjá fólki en það getur oft reynst erfitt þar sem fólk virðist vera skipta oft um eða hætt að nota e-mail hjá sér.. ég get því miður ekki verið að eltast við slíkt.. ég bara var ekki að hafa fyrir því að prenta þetta út.. Svo ef þú heldur að ég sé að gleyma þér þá máttu bara endilega bjalla á mig (6633493) eða í póst borgthor hjá gmail.com og skammaðu mig.. ég hef þá kannski bara sent á eitthvað kolvitlaust
Ath það væri ofboðslega gott ef fólk gæti látið mig vita hvort það mætir eða ekki.. og einnig að Það er hljómsveit seinna um kvöldið (hljómsveitin Klaufarnir) og að þeir byrja rukka inn fyrir sitt ball kl:22:00 þannig að betra er að fólk mæti fyrir þann tíma svo það þurfi nú ekki að borga sig inn á svæðið...
Jæja kominn tími til að blogga á ný... Ég skil reyndar ekki þessa bloggleti í manni? Kannski er þetta loksins að verða leiðinlegt eftir 6 ár? Og þó í gegnum þennan tíma hef ég tekið margar pásur og letiköst en viðurkenni þó að ég er alls ekki eins duglegur og fyrst enda var það bara rugl... En jæja ætlaði ekki að röfla um þetta... Heldur segja frá kvikmyndum sem ég hef verið að horfa á... já langt síðan að ég hef verið að fjalla um kvikmyndir hérna! Fyrst ætla ég að segja frá Juno. Ég rakst á þessa mynd á Vinkingbay í byrjun janúar og ákvað að gefa henni séns, þó aðallega vegna þess að Jason Bateman "michael Bluth" ogMichael Cera "George Michael" leika í henni en þá var ég nýbúinn að endurvekja Arrested development áhugann og eyða ómældum tíma í að glápa á þá þætti. Þegar maður horfir svo á myndina er eiginlega ekki annað hægt en að hrífast mjög af leikkonunni Ellen Page sem leikur Juno en hún er einmitt tilnefnd til óskarsverðlauna fyrir hlutverk sitt í myndinni.. og á það fyllilega skilið... Myndin er mjög fyndin og skemmtileg og ég held eiginlega að enginn verði svikinn af þessari mynd... nema þá helst þeir sem vilja bara sjá bílamyndir eða að það sé byssa og morð í myndum. Ég mæli allavega hiklaust með þessari mynd. Hin myndin sem ég ætla mæla með þessa daganna er kanadísk mynd og fær þar með litla umfjöllun... Það er myndin Weirdsville ... Þessi mynd er tær snilld! Hún er ekkert að fjalla um neitt merkilegt svosem, dópista sem skulda pening og þurfa redda því... en hvernig þetta er allt saman útfært er mjög skemmtilegt... andrúmsloftið í myndinni er líka eitthvað svo kunnulegt... ég allavega var mjög hrifinn af þessari mynd! húmorinn er mjög góður, músík flott og söguþráður afar skemmtilegur...
Jæja tvær myndir sem þið getið fundið til að glápa á verði ykkur að góðu
hey já Verkfallið bara á enda komið hjá handritshöfundum! snilld
Það mætti segja að ég væri svo sannarlega á cloud 9 núna ... hvað svo sem er átt við það... En ég var að fá einkunn fyrir BA ritgerðina mína og það var bara eitt stk 9... Ég og Kalli fögnuðum gríðarlega í gegnum MSN eins og okkar samskipti hafa verið núna síðasliðið ár hehe.. tár bros og takkaskór nei meina blóð, sviti og tár og núna bros!
Þá er þessu formlega lokið og ég get hætt að stressa mig á því að hún myndi svo bara fella okkur eða eitthvað álíka skemmtilegt... og get farið að planleggja útskriftarpartý þann 23 febrúar næstkomandi... Vonandi að flestir geti tekið daginn frá
Ég held að bloggfærslur geti eiginlega ekki orðið óáhugaverðari né leiðinlegri en þessi sem þú ert að fara leggja út í að lesa... Ég skil eiginlega ekki af hverju þú heldur áfram að lesa þar sem það er fyrirfram búið að aðvara þig að þetta verður svo hrikalega leiðinleg bloggfærsla að það er skynsamlegra að kveikja á stillimyndina á RÚV eða hlusta á Svandísi Svavarsdóttur tala.
Ég ætlaði bara tala um morguninn hjá mér.. en ég vaknaði kl níu í morgun vegna þess að ég átti tíma í klippingu hjá fröken Siggu Kollu kl hálf tíu í morgun sem ég rétt náði með stírurnar í augunum... eftir prýðisgóða klippingu var alveg klukkustund í það að ég átti að mæta í vinnuna fór ég að rúnta um borgina og tók þar á meðal einn bryggjurúnt... fattaði það að ég hlýt að vera orðinn afar gamall ef ég er farinn að taka bryggjurúnt kl 10 á laugardagsmorgni...