Jæja ammríski draumurinn... Ég og Birkir (Girpir) förum á vit ævintýranna á morgun þegar við fljúgum út til New york sem er einmitt í New York fylki.. vó! En þá hefst nokkra daga ferðlagi okkar um land feita mannsins.. en svo skemmtilega vill til að ferðinni er einmitt heitið að fagna með einum af þessum feitu mönnum sem er að útskrifast úr lögfræði niðurfrá í Florida! Hann er samt ekki innfæddur feitingi heldur með smá víkingablóð í sér sem minnkar stöðugt með hverri fituögninni úr Burger king sem hann slafrar upp í sig!
en jæja.. Ferðin mun líta einhvernveginn svona út: New York á morgun í c.a 3 daga á hóteli sem er staðsett snöggsnar við Central Park! síðan tökum við lest niðureftir til Washington þar sem við munum taka á leigu eitt stk bílaleigubíl... Held að Mazda verði fyrir valinu.. það var ekki hægt að fá SatNav í amrísku jeppana... lélegt!! En þá byrjar roadtrip hjá okkur sem endar í Tallahasee, florida! þann 1.maí og stefnan að fagna afmæli móður minnar ásamt próflokum feita mannsins!!
Það er allt afar óljóst hvað við gerum svo.. .feiti maðurinn talaði um bústað við ströndina, Miami ferð og Orlando.. eina sem ég veit er að við eigum flug til Boston 11 maí og þaðan til Keflavíkur síðar um kvöldið!!
Nei sæl þið hér? Heyrðu.. eins og kannski einhverjir kunna að vita þá er ég frekar mikill aðdáandi hreyfimynda og þá sérstaklega þeim sem er með hljóði. Maður er ávallt duglegur að heimsækja síðuna imdb.com og apple.com/trailers enda veit ég fátt skemmtilegra en að fylgjast með því sem er að koma og horfa á trailera... Það er ákveðin list í að gera góðan trailer! Ég var núna að flakka um á apple síðunni í dag og rakst þá strax á tvær mjög efnilegar myndir.. í frysta lagi má nefna myndina "The Fall".. Fannst hún líta mjög vel út og ekki skemmir að hún fær 8,3 af 10 á IMDB... sem er mjög gott! Það kom mér samt mjög á óvart að hún er frá árinu 2006 og því alls ekkert ný!
Hin myndin "The strangers" ég horfði á Trailerinn og ég mæli eiginlega með því að þið gerið slíkt hið sama.. Ég er nefnilega mikill aðdáandi svona "Ég fékk næstum því hjartaáfall" myndum... eins óþægilegt það getur verið að horfa á svona myndir er það alger snilld að verða hræddur yfir bíómynd! Og ég held að þessi sé barasta að fara vekja góða lukku! amk lofar þetta myndbrot mjög góðu!!
En að lokum.. Hugmynd að myndum fyrir vídjógláp um helgina!
Tvær "This" myndir!
heimildarmynd... ekki um Islam eða hryðjuverk, dauða og þunglyndi... þetta er myndin This movie is not yet rated! og er tær snilld
Stal þessu af síðunni hjá þeim Gesti og Siggu sem eru að sigla heimsins höf (haf). Einstaklega vel gefið fólk sem siglir um á skútu þrátt fyrir mikla kreppu...
Fólk er skemmtilegt og ríkt af hugmyndaflugi... Til dæmis datt einum ökumanni í umferðinni í Reykjavík í hug að taka fram úr mér á hringtorgi, það vakti mikla lukku.
En annars líst mér helvíti vel á þetta. Þá getum við loksins drukkið átappað vatn frá Vestmannaeyjum (Syðri-Mörk undir Eyjafjöllum). Ég mæli með nafninu, Volcano Water svona fyrir heimsborgaranna... og eða Vítis-Vatn margt skemmtilegt hægt í þessu...
Ekki þó tannlæknir í Vestmannaeyjum, það er annar Hartmann en er ég þó handviss um að hann hafi taktinn í blóðinu og skora ég á hann að taka einn slagara þegar tækifæri gefst.
En af öðrum Hartman, þá er það Dan nokkur Hartman sem var söngvaskáld frá feitramannalandi. Hann var í stórhljómsveitinni The Legends með bróðir sínum Dave (Davíð) og spilaði Hartman á hljómborð (alveg eins og hinn stórmerkilegi Þórir Ólafsson). Ekki þótti stórhljómsveitin The Legends merkileg enda áttu þeir enga "Hittara" þrátt fyrir að hafa gefið út helling af plötum. Eftir dvölina í The Legends, skrapp hann yfir í Edgar Winter Group og gerði með þeim þrjár plötur og samdi meðal annars Free Ride sem sló aldeilis í gegn hérna í den... þeir sem ekki muna eftir því þá var það endurgert fyrir stórmyndina Power Rangers árið 1995.
Það var svo árið 1978 sem hann Hartman sló í gegn með laginu Instant replay og eftir það fylgdi frægð og frami því stuttu seinna gaf hann út lagið Relight my fire sem allir hafa einhverntíman raulað með þegar þeir hafa hlustað á Bylgjuna.
Það var svo árið 1984 sem hann kom aftur eins og þruma úr heiðskíru lofti með einn enn stórsmellinn. Lagið var I can dream about you sem var einmitt notað í kvikmyndinni Streets of fire sem enginn man eftir... En í kvikmyndinni er það blökkumaður að nafni Stoney Jackson sem syngur lagið (eða mímar lagið réttara sagt.)
Hann Hartman fékk þó að njóta sín í myndbandinu við lagið, þar sem hann leikur hressan syngjandi barþjón.. skemmtilega útfært myndband með enn einni Jukebox klisjunni... en er ekki bara málið að kalla á Youtube!